Skoða vörur
Moss

Moss

54,000 kr
Blaze

Blaze

54,000 kr

Smáatriði sem skipta máli

Festing fyrir hlaup

Festing fyrir hlaup

Festingin framan á vestinu gerir þér kleift að festa byssuna á þægilegan hátt og hafa hendurnar frjálsar á ferðinni. Með einum takka er hægt að losa byssuna hratt og örugglega þegar þörf krefur. Þannig sameinar festingin þægindi, öryggi og skjótan aðgang að byssunni.

Töskur á mittisbelti

Töskur á mittisbelti

Mittisbeltið er útbúið fjórum fjarlægjanlegum hólfum. Tveimur rúmgóðum geymslupokum og tveimur vatnsflöskuhólfum, sem auðvelt er að fjarlægja eða raða eftir þörfum hvers og eins. Framan á geymslupokunum eru festingar, sem tryggja þægilegan og skjótan aðgang að skotunum.

Auka byssufestingar

Auka byssufestingar

Vestið er útbúið tveimur aukafestingum fyrir byssur. Ein á hvorri hlið, fyrir þá sem vilja hafa fleiri en eina byssu meðferðis. Ásamt festingunni að framan er því hægt að festa allt að þrjár byssur á vestið samtímis.

Hólf fyrir bráðina

Hólf fyrir bráðina

Vestið er útbúið rúmgóðu hólfi fyrir bráðina sem hægt er að stækka eða minnka eftir þörfum. Hönnunin gerir þér kleift að koma bráðinni fyrir á einfaldan og þægilegan hátt án þess að þurfa að taka vestið af þér.

Festingar

Festingar

Fjölmargar stillanlegar ólar gera þér kleift að laga vestið nákvæmlega að þínum líkama. Vestið kemur í einni stærð og hentar ólíkum líkamsgerðum án þess að skerða þægindi eða hreyfigetu.

Við mætum náttúrunni með nákvæmni